Um verkefnið
Háskólasamstæða – Efling háskólastarfs á Íslandi
Í ágúst 2023 undirrituðu rektorar HÍ og HH ásamt þáverandi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra viljayfirlýsingu þar sem samþykkt var að hefja formlega viðræður um aukið samstarf og mögulega sameiningu. Gerð var fýskileikagreining á því hvaða form myndi henta best til að efla starfsemi beggja skóla með aukin gæði að markmiði.
Í lok árs 2023 skilaði stýrihópur, skipaður fulltrúum beggja skóla, niðurstöðu sinni um að háskólasamstæða væri fýsilegasti kosturinn. Aðdragandinn að stofnun slíkrar samstæðu hefur því verið langur og fulltrúar beggja háskóla komið að þeirri vinnu. Einnig hefur framtíðaruppbygging kennsluhúsnæðis við Háskólann á Hólum verið til skoðunar.
Í lok árs 2025 var frumvarp um breytingar á lögum um opinbera háskóla lagt fram í Samráðsgátt Alþingis og fór fyrsta umræða um lögin fram á Alþingi í janúar 2026. Á meðan beðið er endanlegrar afgreiðslu halda ákveðin undirbúningsverkefni áfram á vegum háskólanna og rannsóknarsetra Háskóla Íslands, en höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknarsetra HÍ verða fluttar í Skagafjörð við stofnun samstæðunnar. Aðrir þættir bíða þar til frumvarpið hefur verið samþykkt.
Upplýsingar um innihald lagafrumvarpsins eru í flipunum undir starfsfólk og nemendur. Þar að auki er hlekkur á frumvarpið hér á síðunni.
Í einföldu máli felur frumvarpið í sér er að Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum myndi háskólasamstæðu. Gert er ráð fyrir einum rektor yfir báðum skólum og einu háskólaráði, samstæðan verður rekin á einni kennitölu og öll stoðþjónusta, mannauðsmál og rekstur verður hjá Háskóla Íslands. Háskólinn á Hólum verður aðildarháskóli samstæðunnar og mun halda áfram með núverandi námsframboð og rannsóknarstarf. Til að tryggja sjálfstæði í námi, kennslu og rannsóknum verður svokallað samstarfsráð sett á laggirnar. Ráðið hefur það mikilvæga hlutverk að samþykkja allar meginbreytingar sem háskólaráð leggur til og tengjast starfi aðildarháskóla. Við myndum háskólasamstæðunnar mun umsjón með Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands flytjast til Háskólans á Hólum og forstöðumaður mun hafa starfsstöð í Skagafirði.
Með stofnun háskólasamstæðunnar er lögð áhersla á öflugt háskólastarf á landsbyggðinni.
Á þessum vef verða birtar upplýsingar um vinnu tengda háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. Jafnframt verður leitast við að svara spurningum starfsfólks og nemenda. Tilvísunum í fréttir, skýrslur og upplýsingar verður bætt við eftir því sem þörf er á og þær berast. Leitast verður við að svara spurningum starfsfólks og nemenda ásamt því að setja inn annað efni sem lýsir framgangi verkefnisins.
Hægt er að senda inn fyrirspurnir eða tillögur að efni sem ætti erindi inn á þessa síðu. Allar fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
- Mat á fýsileika aukins samstarfs eða sameiningar Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum. Janúar 2024
- Hólar í Hjaltadal – Endurreisn þjóðmenningarstaðar. Febrúar 2024
- Samningur um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum. Apríl 2025.
- Samkomulag_Háskóla_Íslands_og_Háskólans_á_Hólum_um_stjórnskipulag_háskólasamstæðu. Maí 2024.
- Viljayfirlýsing_um_aukið_samstarf_og_mögulega_sameiningu_Háskólans_á_Hólum_og_Háskóla_Íslands Ágúst 2023.
- Kort af starfsstöðvum rannsóknasetra HÍ
Við undirbúning samstæðunnar eru starfandi nokkrir vinnuhópar um ákveðin verkefni sem unnin eru af starfsfólki beggja háskólanna. Hér verður gerð grein fyrir megin verkefnum hvers hóps og hvaða fulltrúar eru í hópunum. Hér er ekki um tæmandi upptalningu að ræða hvað varðar verkefni hvers hóps og þegar Alþingi hefur lokið afgreiðslu frumvarpsins munu verkefnin skýrast enn betur. Verkefni hópanna eru stefnumótandi þróunarstarf sem lýkur ekki um leið og samstæðan verður til heldur halda áfram út frá skilgreiningum laganna og skipulagi samstæðunnar. Lykilhóparnir hafa og munu kalla til eftir þörfum, starfsfólk, nemendur og aðra hagaðila sem koma að þeim verkefnum sem unnið er að hverju sinni.
Stýrihópur
Stýrihópur er skipaður fjórum fulltrúum frá hvorum skóla og hefur unnið að undirbúningi verkefnisins síðan í ágúst 2023 en þá undirrituðu rektorar beggja skólanna ásamt ráðherra háskólamála viljayfirlýsingu um að hefja formlegar viðræður um aukið samstarf og hugsanlega sameiningu skólanna. Í kjölfarið tilnefndu háskólarnir hvor um sig fjóra fulltrúa til viðræðna um áframhaldandi greiningu og framkvæmd vinnunnar við myndun háskólasamstæðu.
Stýrihópur hefur unnið að stjórnskipulagi og gæðamálum samstæðunnar og eru samkomulög um stjórnskipulag sem rektorar beggja skólanna ásamt ráðherra háskólamála undirrituðu 17. maí 2024 og 25. apríl 2025 helsta afurð þeirrar vinnu ásamt frumvarpi til breytinga á lögum um opinbera háskóla. Í þessum skjölum voru lagðar línur um eina yfirstjórn yfir samstæðunni, s.s. einn rektor, eitt háskólaráð, eitt samstarfsráð og sameiginlega og samræmda stjórnsýslu. Hópurinn mun móta tillögur um stjórnskipulag og reglur háskólasamstæðunnar sem tryggja farsæla starfsemi, þróun og gæði við stofnun háskólasamstæðunnar.
Verkefni Stýrihóps eru unnin af Framkvæmdahópi sem mun halda utan um verkefnin og framgang þeirra, í nánu samráði við aðra aðila í stýrihópi verkefnisins, sem og gæðastjóra háskólanna og fulltrúa ráðuneytis.
Stýrihópur fundar einu sinni í mánuði til að ræða verkefni framkvæmdahóps og samstæðuverkefnisins í heild. Helstu málefni snúa að stjórnskipulagi, gæðamálum, sameiginlegri stjórnsýslu, stoðþjónustu og ýmsir aðrir málaflokkar innan samstæðunnar. Í hópnum sitja eftirtaldir fulltrúar:
- Rögnvaldur Jóhann Snæbjörnsson aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika HÍ
- Áskell Heiðar Ásgeirsson lektor ferðamáladeild HH
- Snæbjörn Pálsson deildarforseti líf- og umhverfisvísindadeildar HÍ
- Anna Guðrún Edvardsdóttir rannsóknarsérfræðingur HH
- Halldór Jónsson sviðsstjóri vísinda- og nýsköpunarsviðs HÍ
- Sæunn Stefánsdóttir sviðsstjóri Þróunarsviðs og forstöðumaður Stofnunar rannsóknarsetra HÍ
- Hólmfríður Sveinsdóttir rektor HH
- Edda Matthíasdóttir framkvæmdastjóri HH
Framkvæmdahópur um myndun háskólasamstæðu
Framkvæmdahópur um myndun háskólasamstæðu ber ábyrgð á framgang samstæðuverkefnisins og hefur heildarsýn yfir verkefni og framkvæmd þeirra. Sér um samskipti við ráðuneyti og aðra hagaðila. Framkvæmdahópur fundar vikulega og oftar ef þörf er á. Í framkvæmdahóp sitja:
- Halldór Jónsson sviðsstjóri vísinda- og nýsköpunarsviðs HÍ
- Sæunn Stefánsdóttir sviðsstjóri Þróunarsviðs og forstöðumaður Stofnunar rannsóknarsetra HÍ
- Hólmfríður Sveinsdóttir rektor HH
- Edda Matthíasdóttir framkvæmdastjóri HH
Starfshópur um undirbúning flutnings Stofnunar rannsóknarsetra Háskóla Íslands til Hóla
Í frumvarpinu um stofnun háskólasamstæðu kemur fram að áformað sé að flytja höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknarsetra Háskóla Íslands í Skagafjörð. Flutningurinn er í samræmi við markmið samstæðunnar að efla starfsemi Háskóla Íslands um land allt og styrkja sérstaklega hlutverk Háskóla Íslands á Hólum sem háskóla á landsbyggðinni. Starfshópurinn er skipaður fulltrúum beggja háskóla og hefur það hlutvera að aðstoða vð undirbúningsvonnu vegna flutninganna og meta hvernig best verði staðið að þeim ásamt því að koma með tillögur um hvernig efla megi starfsemi rannsóknarsetranna um land allt. Starfshópurinn á að skila samantekt og tillögum í formi skýrslu fyrir lok aprílmánaðar 2026. Horft verði til niðurstaðna vinnufundar starfsfólks beggja háskólanna og rannsóknarsetranna sem haldinn var á Hólum í október 2025. Í starfshópnum sitja:
- Anna Guðrún Edvardsdóttir, rannsóknarsérfræðingur við ferðamáladeild HH
- Bjarni Kristófer Kristjánsson, prófessor og deildarstjóri við fiskeldis- og fiskalíffræðideild HH
- Sveinn Ragnarsson, prófessor við hestafræðideild HH
- Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Vestfjörðum
- Jón Einar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi
- Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Hornafirði
Kennsluhópur
Fjallar um nám og kennslu, samstarf um kennslumál og námsskipan. Skipulag og þjónusta Kennslusviðs HÍ til nemenda og starfsfólks hvað varðar nám og kennslu og útfærslu þeirrar þjónustu innan háskólasamstæðunnar. Horft er til samræmingar á verkferlum innan náms og kennslu, fræðslu og starfsþróun fyrir akademískt starfsfólk, samræmingu stoðþjónustu til nemenda og starfsfólks og uppbygging þjónustu s.s. bókasafnsþjónustu og annarri almennri þjónustu innan samstæðunnar. Hópurinn fundar einu sinni í mánuði og eftir þörfum út frá verkefnum hverju sinni. Í hópnum sitja:
- Sólveig Birna H. Elísabetardóttir, nemandi í viðburðarstjórnun við HH
- Sigríður Huld Jónsdóttir verkefnastjóri HH/HÍ
- Áskell Heiðar Ásgeirsson lektor ferðamáladeild HH
- Snæbjörn Pálsson deildarforseti líf- og umhverfisvísindadeildar HÍ
- Kristinn Andersen sviðsstjóri Kennslusviðs HÍ
Mannauðshópur
Fjallar um mannauðs- og kjaramál. Sér um allt utanumhald um mannauð á tímum breytinga, samræmingu kjara og aðrar áskoranir sem tengjast mannauðsmálum s.s. greiningar á starfskyldum, útfærslu í samræmdum mannauðskerfum s.s. Orra og greiningu og útfærslu á þáttum sem eru mismunandi milli landsbyggðar og höfðuborgarsvæðisins. Hópurinn fundar á 2ja vikna fresti og oftar ef þarf. Í hópnum eru:
- Ragnhildur Ísaksdóttir sviðsstjóri mannauðssviðs HÍ
- Jónína Helga Ólafsdóttir teymisstjóri á mannauðssviði HÍ
- Edda Matthíasdóttir framkvæmdastjóri HH
- Auður Ingimarsdóttir mannauðsráðgjafi HH
Upplýsingatæknihópur
Hlutverk hópsins er að móta tillögur um skipulag upplýsingatæknimála í háskólasamstæðu og framkvæma yfirfærslur yfir í sameiginleg kerfi. Horft er til þess að samþætta og samræma UT mál, og auka þannig skilvirkni í starfsemi háskólasamstæðu og tryggja góða þjónustu í upplýsingatækni. Hópurinn fundar eftir þörfum og fulltrúar vinna að ákveðnum verkefnum hópsins á milli funda. Í hópnum eru:
- Sæunn Stefánsdóttir sviðsstjóri Þróunarsviðs og forstöðumaður Stofnunar rannsóknarsetra HÍ
- Guðmundur H. Kærnested sviðsstjóri upplýsingatæknimála HÍ
- Broddi Reyr Hansen upplýsingatæknistjóri HH
- Edda Matthíasdóttir framkvæmdastjóri HH
Rannsóknarhópur
Eitt af meginmarkmiðum háskólasamstæðunnar er að efla rannsóknir innan aðildarháskólanna. Í þessum verkþætti verður unnið með að styrkja samstarf um rannsóknir, nýsköpun og rannsóknainnviði. Lögð er áhersla á að kortleggja tækifæri, hvetja til samnýtingar rannsóknainnviða og vinna að áætlun um innviðauppbyggingu Háskólans á Hólum í samstarfi við innviðastjóra Háskóla Íslands. Einnig verður farið yfir aukið samstarf Háskólans á Hólum við rannsóknasetrin með áherslu á samnýtingu innviða og mögulega samþættingu verkefna. Hópurinn fundar eftir þörfum og fulltrúar vinna að ákveðnum verkefnum hópsins á milli funda. Í hópnum eru:
- Halldór Jónsson sviðsstjóri vísinda- og nýsköpunarsviðs HÍ
- Eva Kuttner rannsóknarstjóri HH
- Anna Guðrún Edvardsdóttir rannsóknarsérfræðingur HH
Fjármál og húsnæðismál
Hlutverk hópsins er að móta tillögur um skipulag fjármála háskólasamstæðu, þ.m.t. nauðsynlega samþættingu og samráð um tilhögun áætlana og greininga sameiginlegrar starfsemi og sjálfstæðra eininga. Hópurinn fjallar um húsnæðismál og þá sérstaklega úrbætur á núverandi húsnæði Háskólans á Hólum með það að markmiði að auka skilvirkni, bæta þjónustu og tryggja húsnæði fyrir nám og kennslu við Háskólann á Hólum. Hópurinn fundar eftir þörfum og fulltrúar vinna að ákveðnum verkefnum hópsins á milli funda. Í hópnum eru:
- Edda Matthíasdóttir framkvæmdastjóri HH
- Jenný Bára Jensdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs HÍ
- Guðmundur Ragnar Jónsson framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar HÍ
Kynningar- og markaðsmál
Markmið hópsins er að skapa sameiginlega ásýnd háskólasamstæðunnar. Greina og hanna þarf sameiginlega ásýnd fyrir háskólasamstæðuna en um leið að efla sjálfstæða ímynd og ásýnd aðildarháskólanna. Horft er til uppsetningu upplýsinga á heimasíðum og á kynningarefni samstæðunnar. Hópurinn fundar eftir þörfum og fulltrúar vinna að ákveðnum verkefnum hópsins á milli funda. Í hópnum eru:
- Jón Örn Guðbjartsson sviðsstjóri Markaðs- og samskiptasviðs HÍ
- Sæunn Stefánsdóttir sviðsstjóri Þróunarsviðs og forstöðumaður Stofnunar rannsóknarsetra HÍ
- Ólína Björk Hjartardóttir verkefnastjóri HH
- Hólmfríður Sveinsdóttir rektor HH