Háskólasamstæða Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum

Hér verða birtar upplýsingar um háskólasamstæðu Háskóla Íslands á Hólum og Háskóla Íslands. Spurningum og svörum verður bætt við eftir því sem verkefninu vindur fram en sumum spurningum verður ekki hægt að svara fyrr en Samstarfsráð háskólasamstæðunnar og Háskólaráð HÍ hafa samþykkt breytingar á regluverki háskólasamstæðunnar.

Nemendur eru hvött til að nýta sér Senda fyrirspurn hnappinn neðst á síðunni og senda inn spurningar og tillögur að efni sem varðar samstæðuháskólann. Fullum trúnaði er heitið og nöfn þeirra sem senda inn fyrirspurn birtist ekki í neinum gögnum.

Í frumvarpi um breytingar á lögum um háskóla er að finna eftirfarandi skilgreiningu  á háskólasamstæðu:

  • Háskólasamstæða er samstarfsform þar sem tveir eða fleiri sjálfstæðir háskólar sameinast undir sameiginlegri yfirstjórn. Háskólar sem tilheyra háskólasamstæðu skiptast í samstæðuháskóla og aðildarháskóla. Samstæðuháskóli leiðir háskólasamstæðu og rektor og háskólaráð þess háskóla fer með stjórn samstæðunnar og þeirra háskóla sem undir hana heyra. Þeir háskólar sem sameinast samstæðuháskóla kallast aðildarháskólar og bera sama heiti og samstæðuháskóli auk tilvísunar til staðsetningar eða hlutverks. Háskóli Íslands er samstæðuháskólinn en aðildarháskólinn verður Háskóli Íslands á Hólum (HÍH).
  • Lagabreytingin felur í sér mikilvæg ákvæði sem taka sérstaklega á stöðu aðildarháskóla. Þar á meðal er ákvæði um svokallað samstarfsráð sem ætlað er að tryggja ákveðið sjálfstæði aðildarháskóla innan háskólasamstæðunnar. Samstarfsráð tekur ákvarðanir um samstarf um nám, kennslu og rannsóknir auk ákvarðana sem varða þróun og starfsemi aðildarháskóla innan háskólasamstæðunnar. Óheimilt er að taka ákvarðanir sem varða grundvallarbreytingar á starfsemi og námsskipan aðildarháskóla nema þær hafi hlotið einróma samþykki í samstarfsráði. Samstarfsráðið er því með neitunarvald í þessum efnum.
  • Með stofnun háskólasamstæðunnar flytjast höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknarsetra HÍ í Skagafjörð.
  • Við undirbúning að stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum hafa verið settir á laggirnar nokkrir lykilhópar sem fjalla um afmörkuð verkefni, þar á meðal um rannsóknir, mannauð, nám og kennslu og  stoðþjónustu við nemendur og kennara. Þessir hópar munu halda áfram að starfa eftir stofnun háskólasamstæðunnar eða þar til hlutverki þeirra er lokið samskvæmt ákvörðunum innan háskólasamstæðunnar. 

Nei, við stofnun samstæðunnar verða engar breytingar á námsbrautarlýsingum eða námsframboði skólanna. Námsframboð og námsbrautarlýsingar næsta haust miðast við þær breytingar sem skólarnir hafa þegar ákveðið að gera fyrir 1. mars 2026. Breytingar á námsbrautum og námsframboði í háskólasamstæðu verður með sama hætti og verið hefur innan skólanna og fylgja þeim reglum sem skólarnir setja sér.

  • Þegar háskólasamstæðan hefur verið stofnuð verður námsframboð Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum að finna í námskrám skólanna fyrir skólaárið 2026-2027.
  • Mögulega verða nýjar eða breyttar námsbrautir í
    boði en frá 1. mars 2026 verður hægt að sjá námsframboð skólanna fyrir næsta skólaár.

Nei, inntökuskilyrði eru ákveðin samkvæmt reglum skólanna og sérstök inntökuskilyrði og inntökupróf verða með þeim hætti sem þegar gilda um námsleiðir skólanna. Svið og deildir innan háskólasamstæðu geta breytt inntökuskilyrðum þegar kennsluskrár skólaára eru birtar í Uglu og á umsóknarvef fyrir hvert skólaár. Það er samkvæmt reglum sem gilda nú þegar í hverjum skóla og ef breyta á inntökuskilyrðum hafa skólarnir, svið og deildir ákveðnar reglur sem lýsa því ferli. 

  • Fyrir nemendur sem sækja um í Háskóla Ísland fyrir næsta skólaár verður ferlið óbreytt og samkvæmt því skipulagi sem þegar hefur verið kynnt.
  • Nemendur sem sækja um nám við Háskólann á Hólum skólaárið 2026–2027 munu fá svar við umsókn sinni frá Háskólanum á Hólum í júní en umsóknarfrestur um grunnnám er 5. júní 2026.
  • Nemendur sem innritast í Háskólann á Hólum vorið 2026 hefja nám innan háskólasamstæðu Háskóla Íslands, nánar tiltekið við Háskóla Íslands á Hólum haustið 2026.
  • Allar nánari upplýsingar varðandi umsóknarferlið og nýnemadaga verða á heimasíðu HÍ og HÍH. 
  • Já, þú getur tekið námskeið í báðum skólum í samráði við kennsluskrifstofu þess sviðs sem þú innritast í Háskóla Íslands en við kennsluskrifstofu Háskóla Íslands á Hólum ef þú ert nemandi þar.
  • Námskeið verða metin milli skóla í samræmi við reglur sem gilda í hvorum skóla.
  • Nemendur greiða eitt skrásetningargjald í háskólasamstæðunni. Þeir þurfa því ekki að greiða sérstaklega fyrir það að taka námskeið í hinum skólanum í samstæðunni.
  • Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði þess námskeiðs sem um ræðir samkvæmt reglum sem gilda í viðkomandi skóla. Það á líka við um reglur um námsmat og skil.
  • Í samstæðunni eru námskeið bæði fjarnámskeið og staðnámskeið og því þarf að velja námskeið á milli skóla með tilliti til þess.
  • Nei, engar breytingar á námsleiðum eða tilfærsla á námi verður vegna stofnunar háskólasamstæðunnar. Námið í Háskóla Íslands og við Háskóla Íslands á Hólum verður með sama hætti og birtist í kennsluskrá 2026-2027. 
  • Staðarlotur og fjarnám á Hólum verður skipulagt með sama hætti og áður og hestafræðin verður áfram staðnám á Hólum og járningarnámið fjarnám með staðlotum. Í Háskóla Íslands verður skipulag náms í höndum sviða og deilda eins og verið hefur.

Já, en fyrst og fremst fyrir nemendur við Háskóla Íslands á Hólum . Þeir munu frá aðgang að allri þjónustu sem nú þegar er við Háskóla Íslands. 

Dæmi um þjónustu sem Háskóli Íslands býður nemendum upp á:

Nánari útfærsla á skipulagi þjónustunnar er í vinnslu og verður stöðugt í þróun. Allir nemendur háskólasamstæðunnar munu hafa aðgang að sömu þjónustu, hvar sem þeir eru staðsettir og óháð því hvort þeir eru fjar- eða staðnemar. 

Þrátt fyrir að starfsfólk og aðstaða stoðþjónustu sé í byggingum Háskóla Íslands á höfuðborgarsvæðinu verður skipulögð þjónusta fyrir nemendur sem eru í Skagafirði með því að nota fjarþjónustu og í einhverjum tilfellum verður boðið upp á staðþjónustu í Skagafirði.

Þessi upptalning er einungis brot af þeirri stoðþjónustu sem samstæðuháskólinn býður upp á. Nemendur eru hvattir til að senda fyrirspurnir og/eða koma með ábendingar varðandi stoðþjónustuna.

  • Sem fyrr eru netföng starfsfólks og nemenda forsenda innskráningu t.d. í Menntaský (O365), Uglu og Canvas. 

  • Í háskólasamstæðu verða allir starfsmenn og nemendur innan sama kerfis HÍ. Upplýsingar um yfirfærslu og innskráningu í HÍ kerfin verða birtar á heimasíðu skólans og í tölvupósti. 

    • Breytt netföng: allir starfsmenn og nemendur fá @hi.is netföng. 
    • Flutningur gagna: allur tölvupóstur (@holar.is) og gögn í OneDrive (t.d. í Menntaskýi og Teams) munu færast yfir HÍ kerfi háskólasamstæðunnar. Áfram verður aðgangur að þeim gögnum sem þið eigið í dag og eru vistuð í gegnum OneDrive Hóla. 
    • Ugla: gögn og virkni á Hóla-Uglunni verða flutt yfir í sameiginlega Uglu háskólasamstæðunnar. 
    • Canvas og Inspera fylgja tengingum í gegnum Uglu og verður Canvas háskólasamstæðunnar eitt kerfi. 
  • Við stofnun háskólasamstæðu fá nemendur og starfsfólk Háskólans á Hólum aðgang að sömu tölvu- og upplýsingatækniþjónustu og starfsfólk og nemendur Háskóla Íslands. 

  • Kerfisstjórn og þjónusta við nemendur og starfsfólk tengd upplýsingatækni verður hjá Háskóla Íslands en starfsmaður UT-þjónutu verður áfram staðsettur á Hólum. 

  • Upplýsingatæknisvið og Kennslusvið Háskóla Íslands veita starfsfólki innan háskólasamstæðunnar þjónustu óháð staðsetningu.

  • Háskólasamstæðan verður með eina Uglu, Uglu HÍ. 
  • Nemendur þurfa ekkert að gera annað en að fara inn á Ugluna samkvæmt þeim leiðbeiningum sem verða á vefsíðu háskólasamstæðunnar.
  • Eldri gögn og upplýsingar sem tengjast hverjum nemenda í Uglu verða áfram til staðar.
  • Uglan verður áfram mikilvæg upplýsingaveita og öflugt verkfæri fyrir nám og kennslu í háskólasamstæðunni. 

Nei, þú þarft ekki að gera neitt annað en að vera viss um að hafa valið þau námskeið í Uglu sem þú hyggst taka á núverandi námsleið þinni eða þeirri námsleið sem þú ætlar að stunda nám á haustið 2026.

  • Með stofnun háskólasamstæðu verður farið í uppbyggingu rannsóknarhúsnæðis fyrir lagareldi og kennsluhúsnæði fyrir nám og kennslu í ferðamálafræði og fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskóla Íslands á Hólum. Sú uppbygging verður á Sauðárkróki. 

  • Uppbygging náms og kennslu í hestafræði verður á hesthúsasvæðinu á Hólum. Unnið er að skipulagsmálum og þarfagreiningu á aðstöðu. Núverandi kennslu- og skrifstofuhúsnæði í aðalbyggingu Háskólans á Hólum verður nýtt þar til þeirri byggingu verður fundið nýtt hlutverk og ný aðstaða á Hólum verður í byggingu. Nú þegar hefur hluti starfsfólks í stoðþjónustu og kennarar í ferðamálafræði flutt starfsstöðvar sínar á Faxatorg á Sauðárkróki en verða áfram með aðstöðu á Hólum þegar þess þarf. 

  • Starfsfólk í stoðþjónustu mun starfa þvert á starfseiningar samstæðunnar en nánari útfærsla fer fram á næstu mánuðum. Nemendur Háskóla Íslands á Hólum munu í einhverjum tilfellum eiga samskipti við starfsfólk stoðþjónustu háskólasamstæðunnar með fjarþjónustu en jafnframt verður stoðþjónusta á staðnum skilgreind út frá þörfum nemenda.

Nei, engar breytingar verða á réttindum nemenda til að sækja um húsnæði á nemendagörðum, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða á Hólum í Hjaltadal. Upplýsingar um nemendagarða verða á vefsíðu samstæðunnar.

  • Stjórn Stúdentafélags Hólaskóla hefur verið í viðræðum við Stúdentaráð Háskóla Íslands um málefni sem varða réttindi nemenda í samstæðuháskóla. Þar er jafnframt rætt um félagslíf innan samstæðunnar og stúdentakort.
  • Upplýsingar hvað varðar þessa þætti verða birtar nemendum hér þegar ákvörðun liggur fyrir.
  • Samstarfsráð verður mikilvægur hlekkur í starfsemi háskólasamstæðunnar. Ráðið mun fara með mikilvægar ákvarðanir sem varða m.a. samstarf um nám, kennslu og rannsóknir auk ákvarðana sem varða þróun og starfsemi aðildarháskóla innan háskólasamstæðu. Samstarfsráð markar jafnframt stefnu og er ráðgefandi fyrir rektor og háskólaráð um málefni aðildarháskóla. Ákvarðanir sem varða grundvallarbreytingar á starfsemi og námsskipan aðildarháskóla er óheimilt að taka án þess að þær hafi hlotið einróma samþykki í samstarfsráði. Nánar skal kveðið á um hlutverk og verkefni samstarfsráðs í starfsreglum sem ráðið setur sér, að fengnu samþykki háskólaráðs.
  • Rektor og forseti hvers aðildarháskóla eiga sæti í ráðinu og skal rektor vera formaður. Auk þeirra situr einn fulltrúi samstæðuháskóla og einn fulltrúi hvers aðildarháskóla í ráðinu. Rektor og forsetar skulu tilnefna fulltrúa frá sínum skóla í ráðið.

Samkvæmt lögum um opinbera háskóla er hlutverk háskólaráðs mjög víðtækt. Ráðið markar meðal annars heildarstefnu í kennslu og rannsóknum og mótar skipulag háskóla. Frumvarpið gerir ráð fyrir veigamiklu hlutverki samstarfsráðs varðandi m.a. samstarf um nám, kennslu og rannsóknir auk ákvarðana sem varða þróun og starfsemi aðildarháskóla innan háskólasamstæðunnar. Engu að síður er æskilegt að meðal fulltrúa í háskólaráði sé þekking og reynsla af háskóla- og rannsóknarstarfi á landsbyggðinni. Því er lagt til að gerð sé krafa um að annar af tveimur fulltrúum sem ráðherra tilnefnir í háskólaráð hafi slíka þekkingu og reynslu.

Tilnefning fulltrúa ráðherra í háskólaráð háskólasamstæðunnar kemur fyrst til framkvæmda hinn 1. júlí 2026 þegar nýtt háskólaráð Háskóla Íslands tekur til starfa.

Nýtt háskólaráð verður því skipað með þessum hætti (sbr. 6. gr. í lögum nr. 85/2008):

Í háskólaráði háskóla með fleiri en 5.000 nemendur skulu auk rektors eiga sæti tíu fulltrúar, tilnefndir til tveggja ára í senn:

  • Þrír fulltrúar háskólasamfélagsins tilnefndir af háskólafundi.
  • Tveir fulltrúar tilnefndir af heildarsamtökum nemenda við háskólann.
  • Tveir fulltrúar tilnefndir af ráðherra (sbr. drögin skal annar þeirra hafa þekkingu og reynslu af háskóla- og rannsóknarstarfi á landsbyggðinni). Fyrstu tvö ár háskólasamstæðunnar mun forseti Háskóla Íslands á Hólum sitja sem fulltrúi ráðherra í háskólaráði HÍ. 
  • Þrír fulltrúar tilnefndir af þeim fulltrúum sem fyrir eru í háskólaráði.

Nánari upplýsingar um stjórnskipan opinberra háskóla er lýst í lögum nr. 85/2008: Lög um opinbera háskóla | Lög | Alþingi

  • Í frumvarpinu kemur fram að samstæðuháskóli (hér Háskóli Íslands) leiði háskólasamstæðu og rektor og háskólaráð þess háskóla fari með stjórn samstæðunnar og þeirra háskóla sem undir hana heyra. Þeir háskólar sem sameinast samstæðuháskóla kallast aðildarháskólar (hér Háskóli Íslands á Hólum) og lúta sameiginlegri yfirstjórn.
  • Innan háskólasamstæðu skulu aðildarháskólar hafa sömu stöðu og skólar eða fræðasvið innan samstæðuháskóla samkvæmt IV. Kafla laga um opinbera háskóla. Daglegri starfsemi aðildarháskóla stýrir forseti skólans sem ráðinn er af rektor að undangenginni auglýsingu. Forseti aðildarháskóla skal hafa sama hlutverk og stöðu og aðrir forsetar skóla eða fræðasviða innan samstæðuháskóla. Þá skal sérstök stjórn starfa við aðildarháskóla sem gegnir sama hlutverki og stjórnir skóla eða fræðasviða.
  • Samstæðuháskóli fer með sameiginlega stjórnsýslu og stoðþjónustu háskólasamstæðu á grundvelli reglna sem háskólaráð setur.
  • Um stöðu aðildarháskóla, ráðningu, skipan og hlutverk forseta og stjórnar aðildarháskóla skal nánar kveðið á um í reglum sem háskólaráð setur, að fengnu samþykki samstarfsráðs.
  • Frekari vinna við stjórnskipulag innan samstæðunnar verður í höndum samstarfsráðs og háskólaráðs HÍ.
  • Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum njóta formlegrar viðurkenningar á fræðasviðum sínum í samræmi við lög um háskóla, nr. 63/2006. Gæðamat háskóla hefur það hlutverk að meta hvort íslenskir háskólar standist lögbundin skilyrði og kröfur til að hljóta viðurkenningu ráðuneytis háskólamála. Gæðamat háskóla grundvallar starf sitt á stöðlum og nýjustu viðmiðum sem tíðkast í gæðastarfi á Evrópska háskólasvæðinu auk þess að uppfylla innlendar kröfur um Gæðamat í háskólum.
  • Gæðamat háskóla gerir reglubundnar stofnanaúttektir sem grundvallast á formlegri viðurkenndri aðferðafræði í því skyni að tryggja að íslenskir háskólar sinni innra gæðamati og umbótum í allri starfsemi sinni. Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum reka hvor um sig sín formlegu gæðakerfi sem lúta að kjarnastarfsemi skólanna og stoðþjónustu þeirra. Rektorar og háskólaráð beggja skóla bera ábyrgð á þessum kerfum gagnvart ráðuneyti háskólamála og Gæðamati háskóla.
  • Háskólasamstæðan mun verða með eitt formlegt gæðakerfi. Mun forseti aðildarháskóla, líkt og fræðasviðsforsetar Háskóla Íslands, bera ábyrgð á gæðum starfsemi sinna rekstrareininga gagnvart rektor og háskólaráði. Í háskólasamstæðu verður innra gæðastarf þannig sameiginlegt fyrir Háskóla Íslands og Háskóla Íslands á Hólum. Reglubundnar stofnanaúttektir Gæðamats háskóla taka sömuleiðis til háskólasamstæðunnar í heild.
  • Í samræmi við Gæðamat háskóla verður aðkoma nemenda innan samstæðunnar afar mikilvæg í öllu gæðastarfi.