Háskólasamstæða Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum

Hér verða birtar upplýsingar um háskólasamstæðu Háskóla Íslands á Hólum og Háskóla Íslands. Spurningum og svörum verður bætt við eftir því sem verkefninu vindur fram en sumum spurningum verður ekki hægt að svara fyrr en Samstarfsráð háskólasamstæðunnar og Háskólaráð HÍ hafa samþykkt breytingar á regluverki háskólasamstæðunnar.

Starfsfólk er hvatt til að nýta sér hafa samband hnappinn neðst á síðunni og senda inn spurningar og tillögur að efni sem varðar samstæðuháskólann. Fullum trúnaði er heitið og nöfn þeirra sem senda inn fyrirspurn birtist ekki í neinum gögnum. 

Í frumvarpi um breytingar á lögum um háskóla er að finna eftirfarandi skilgreiningu á háskólasamstæðu: 

  • Háskólasamstæða er samstarfsform þar sem tveir eða fleiri sjálfstæðir háskólar sameinast undir sameiginlegri yfirstjórn. Háskólar sem tilheyra háskólasamstæðu skiptast í samstæðuháskóla og aðildarháskóla. Samstæðuháskóli leiðir háskólasamstæðu og rektor og háskólaráð þess háskóla fer með stjórn samstæðunnar og þeirra háskóla sem undir hana heyra. Þeir háskólar sem sameinast samstæðuháskóla kallast aðildarháskólar og bera sama heiti og samstæðuháskóli auk tilvísunar til staðsetningar eða hlutverks. Háskóli Íslands er samstæðuháskólinn en aðildarháskólinn verður Háskóli Íslands á Hólum (HÍH).
  • Lagabreytingin felur í sér mikilvæg ákvæði sem taka sérstaklega á stöðu aðildarháskóla. Þar á meðal er ákvæði um svokallað samstarfsráð sem ætlað er að tryggja ákveðið sjálfstæði aðildarháskóla innan háskólasamstæðunnar. Samstarfsráð tekur ákvarðanir um samstarf um nám, kennslu og rannsóknir auk ákvarðana sem varða þróun og starfsemi aðildarháskóla innan háskólasamstæðunnar. Óheimilt er að taka ákvarðanir sem varða grundvallarbreytingar á starfsemi og námsskipan aðildarháskóla nema þær hafi hlotið einróma samþykki í samstarfsráði. Samstarfsráðið er því með neitunarvald í þessum efnum.
  • Með stofnun háskólasamstæðunnar flytjast höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknarsetra HÍ í Skagafjörð. 
  • Við undirbúning að stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum hafa verið settir á laggirnar nokkrir lykilhópar sem fjalla um afmörkuð verkefni, þar á meðal um rannsóknir, mannauð, nám og kennslu og stoðþjónustu við nemendur og kennara. Þessir hópar munu halda áfram að starfa eftir stofnun háskólasamstæðunnar eða þar til hlutverki þeirra er lokið samskvæmt ákvörðunum innan háskólasamstæðunnar.

Nei, við stofnun samstæðunnar verða engar breytingar á námsbrautarlýsingum eða námsframboði skólanna. Námsframboð og námsbrautarlýsingar næsta haust miðast við þær breytingar sem skólarnir hafa þegar ákveðið að gera fyrir 1. mars 2026. Breytingar á námsbrautum og námsframboði í háskólasamstæðu verður með sama hætti og verið hefur innan skólanna og fylgja þeim reglum sem skólarnir setja sér.

  • Þegar háskólasamstæðan hefur verið stofnuð verður námsframboð Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum að finna í námskrám skólanna fyrir skólaárið 2026-2027.
  • Nýjar eða breyttar námsbrautir skólanna sem samþykktar verða fyrir 1. mars 2026, verður hægt að sjá í námsframboð skólanna fyrir næsta skólaár. 

  • Já, nemendur geta tekið námskeið í báðum skólum. Það þarf þó að í samráði við kennsluskrifstofu þess sviðs sem nemendur eru skráðir í við Háskóla Íslands eða kennsluskrifstofu Háskóla Íslands á Hólum ef nemendur eru skráðir þar.
  • Námskeið verða metin milli skóla í samræmi við reglur sem gilda í hvorum skóla. Nemendur greiða eitt skráningagjald í háskólasamstæðunni og greiða því ekki sérstaklega fyrir námskeið í hinum háskólanum innan samstæðunnar.
  • Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði þess námskeiðs sem um ræðir samkvæmt reglum sem gilda í viðkomandi skóla. Það á líka við um reglur um námsmat og skil.
  • Í samstæðunni eru námskeið bæði fjarnámskeið og staðnámskeið og því þarf að velja námskeið á milli skóla með tilliti til þessa.
  • Háskólasamstæðan verður með eina Uglu, Uglu HÍ. 
  • Upplýsingar sem þegar er að finna í Uglu verða áfram aðgengilegar. Unnið er að því að uppfæra útlit og uppbyggingu Uglunnar sem er óháð stofnun háskólasamstæðu.
  • Uglan verður áfram mikilvæg upplýsingaveita og öflugt verkfæri fyrir nám og kennslu í háskólasamstæðunni. 
  • Sem fyrr eru netföng starfsfólks og nemenda forsenda innskráningu t.d. í Menntaský (O365), Uglu og Canvas. 

  • Í háskólasamstæðu verða allir starfsmenn og nemendur innan sama kerfis HÍ. Upplýsingar um yfirfærslu og innskráningu í HÍ kerfin verða birtar á heimasíðu skólans og í tölvupósti. 

    • Breytt netföng: allir starfsmenn og nemendur fá @hi.is netföng. 
    • Flutningur gagna: allur tölvupóstur (@holar.is) og gögn í OneDrive (t.d. í Menntaskýi og Teams) munu færast yfir HÍ kerfi háskólasamstæðunnar. Áfram verður aðgangur að þeim gögnum sem þið eigið í dag og eru vistuð í gegnum OneDrive Hóla. 
    • Ugla: gögn og virkni á Hóla-Uglunni verða flutt yfir í sameiginlega Uglu háskólasamstæðunnar. 
    • Canvas og Inspera fylgja tengingum í gegnum Uglu og verður Canvas háskólasamstæðunnar eitt kerfi. Canvas Hólar verða aðgengilegt a.m.k. næsta skólaár og kennarar geta nálgast gömul gögn sín þar. Þessi yfirfærsla fljótlega eftir að Ugla og OneDrive hefur gengið í gegn. Öll námskeið haustmisseris verða búin til í Canvas háskólasamstæðunnar.
  • Við stofnun háskólasamstæðu fá nemendur og starfsfólk Háskólans á Hólum aðgang að sömu tölvu- og upplýsingatækniþjónustu og starfsfólk og nemendur Háskóla Íslands. 

  • Kerfisstjórn og þjónusta við nemendur og starfsfólk tengd upplýsingatækni verður hjá Háskóla Íslands en starfsmaður UT-þjónutu verður áfram staðsettur á Hólum. 

  • Upplýsingatæknisvið og Kennslusvið Háskóla Íslands veita starfsfólki innan háskólasamstæðunnar þjónustu óháð staðsetningu.

  • Innan eininga samstæðunnar eru ýmsar hefðir varðandi félagslíf starfsfólks. Það verður áfram í höndum starfsfólks eininganna að viðhalda og byggja þær upp.
  • Stærri viðburði í félagslífi starfsfólks, s.s. árshátíð, á eftir að útfæra. Fyrsta árshátíð samstæðunnar verður haldin fyrstu helgina í nóvember 2026 og verður nánar auglýst þegar nær dregur.
  • Upplýsingar um félagslíf starfsfólks innan samstæðunnar verða birtar þegar ákvörðun liggur fyrir og eftir samráð við starfsfólk.
  • Með stofnun háskólasamstæðu verður farið í uppbyggingu rannsóknarhúsnæðis fyrir lagareldi og kennsluhúsnæði fyrir nám og kennslu í ferðamálafræði og fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskóla Íslands á Hólum. Sú uppbygging verður á Sauðárkróki.
  • Uppbygging náms og kennslu í hestafræði verður á hesthúsasvæðinu á Hólum. Unnið er að skipulagsmálum og þarfagreiningu á aðstöðu. Núverandi kennslu- og skrifstofuhúsnæði í aðalbyggingu Háskólans á Hólum verður nýtt þar til þeirri byggingu verður fundið nýtt hlutverk og á meðan ný aðstaða á Hólum verður í byggingu. Nú þegar hefur hluti starfsfólks í stoðþjónustu og kennarar í ferðamálafræði flutt starfsstöðvar sínar á Faxatorg á Sauðárkróki en verða áfram með aðstöðu á Hólum þegar þess þarf.
  • Starfsfólk í stoðþjónustu mun starfa þvert á starfseiningar samstæðunnar en nánari útfærsla fer fram á næstu mánuðum. Nemendur og starfsfólk Háskóla Íslands á Hólum munu í einhverjum tilfellum eiga samskipti við starfsfólk stoðþjónustu háskólasamstæðunnar með fjarþjónustu en jafnframt verður stoðþjónusta á staðnum skilgreind út frá þörfum nemenda og starfsfólks.
  • Aðstaða rannsóknarsetra Háskóla Íslands verður óbreytt að öðru leyti en því að starfsstöð forstöðumanns Stofnunar rannsóknasetra verður í Skagafirði. Starfshópur um undirbúning flutnings Stofnunar rannsóknarsetra Háskóla Íslands til Háskólans á Hólum mun koma með tillögur um hvernig efla megi starfsemi rannsóknarsetranna um land allt (sjá nánar hér á síðunni Um verkefnið – Vinnuhópar). 
  • Starfsfólk í stoðþjónustu mun geta starfað þvert á starfseiningar innan samstæðunnar en nánari útfærsla verður útfærð á næstu mánuðum. Gera má ráð fyrir því að einstaka verkefni breytist strax á meðan önnur þróast með tímanum.
  • Fyrirkomulag kennslu þvert á skólana verður skilgreint síðar í undirbúnings- og innleiðingarvinnunni.
  • Samstarf rannsóknarsetra við skólana verður með sama hætti og hingað til.

Nei, starfsfólk þarf ekki að gera neinar breytingar á skráningu upplýsinga í Uglu við stofnun samstæðunnar.

Nei, engar breytingar á námsleiðum eða tilfærslur á námi verða vegna stofnunar háskólasamstæðunnar. Haustið 2026 verður nám í Háskóla Íslands og Háskóla Íslands á Hólum með sama hætti og birtist í kennsluskrá fyrir skólaárið 2026-2027. Staðlotur og fjarnám á Hólum verður skipulagt með sama hætti og áður og hestafræði verður áfram staðnám á Hólum. Örnám í járningum verður áfram kennt í fjarnámi og staðlotum á Hólum. Nám í Háskóla Íslands fer fram á þeim stöðum og með þeim hætti sem HÍ skipuleggur. Skipulag náms er í höndum sviða og deilda eins og verið hefur.

Mannauðsmál háskólasamstæðunnar verður á ábyrgð Mannauðssviðs Háskóla Íslands frá 1. júlí 2026.

  • Mannauðsmál verða með sama hætti og verið hefur í Háskóla Íslands.
  • 1. júlí 2026 verður starfsfólk Háskólans á Hólum flutt yfir til háskólasamstæðunnar í samræmi við afgreiðslu Alþingis þegar breytingar á lögum um opinbera háskóla var samþykkt. 
  • Skipulag mannauðsmála við Háskóla Íslands á Hólum verða skilgreind nánar á næstu mánuðum og á ábyrgð Mannauðssviðs HÍ í samráði við forseta HÍH. 
  • Skipulag mannauðsmála innan rannsóknarsetranna á eftir að útfæra nánar en forstöðumaður setranna verður staðsettur í Skagafirði og Mannauðssvið Háskóla Íslands mun koma að skipulagi mannauðsmála.
  • Hjá flestum akademískum starfsmönnum breytast dagleg kennslu- og rannsóknarstörf lítið við myndun samstæðunnar. Kennsla og rannsóknir verða samkvæmt því sem fræðasvið og deildir hafa skipulagt.
  • Fræðasvið og deildir innan háskólasamstæðunnar munu móta samstarf innan hennar. Fyrirkomulag kennslu milli skólanna verður skilgreint síðar í undirbúnings-nog innleiðingarvinnunni. Framtíðartækifæri í  námi og rannsóknum móta akademískir starfsmenn innan samstæðunnar.
  • Hinn 1. júlí 2026 verður embætti rektors Háskólans á Hólum lagt niður og núverandi rektor Háskólans á Hólum verður forseti Háskóla Íslands á Hólum. Á sama tíma flytjast öll störf kennara sem ráðnir eru ótímabundið og uppfylla skilyrði 18. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006 og annarra starfsmanna sem ráðnir eru ótímabundið við Háskólann á Hólum yfir til Háskóla Íslands. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt ákvæði þessu. Um flutning þessara starfa fer að öðru leyti eftir ákvæðum sömu laga.
  • Rektor Háskóla Íslands verður rektor háskólasamstæðunnar og háskólaráð Háskóla Íslands verður háskólaráð háskólasamstæðunnar.
  • Breytingar á lögum um opinbera háskóla gerir ráð fyrir því að Háskóli Ísalands fari með sameiginlega stjórnsýslu og stoðþjónustu háskólasamstæðunnar á grundvelli reglna sem háskólaráð setur.
  • Líklega verða einhverjar breytingar á störfum og tilfærslur á verkefnum innan samstæðunnar en endanleg útfærsla fer fram á næstu mánuðum í innleiðingunni. 
  • Ef gerðar verða breytingar á störfum og verkefnum verður það gert í samtali og samráði við starfsfólk og út frá þörfum háskólasamstæðunnar í heild.
  • Með stofnun háskólasamstæðunnar gefst færi á að auglýsa fleiri störf í stoðþjónustu þar sem val er um starfsstöð í Skagafirði eða á höfuðborgarsvæðinu.
  • Hinn 1. júlí 2026 verður embætti rektors Háskólans á Hólum, lagt niður og núverandi rektor Háskólans á Hólum verður forseti Háskóla Íslands á Hólum. Á sama tíma flytjast öll störf kennara sem ráðnir eru ótímabundið og uppfylla skilyrði 18. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006 og annarra starfsmanna sem ráðnir eru ótímabundið við Háskólann á Hólum yfir til Háskóla Íslands. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996 réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt ákvæði þessu. Um flutning þessara starfa fer að öðru leyti eftir ákvæðum sömu laga.
  • Rektor Háskóla Íslands verður rektor háskólasamstæðunnar og háskólaráð Háskóla Íslands verður háskólaráð háskólasamstæðunnar.

Frumvarpið gerir ráð fyrir því að Háskóli Íslands sem samstæðuskóli beri ábyrgð á og taki við eignum og skuldbindingum Háskólans á Hólum sem aðildarháskóla. Samstæðan verður með sameiginlegt fjárlaganúmer og kennitölu. Fjárhagur skólanna verður endanlega sameinaður 1. janúar 2027. 

  • Samstarfsráð verður mikilvægur hlekkur í starfsemi háskólasamstæðunnar. Ráðið mun fara með mikilvægar ákvarðanir sem varða m.a. samstarf um nám, kennslu og rannsóknir auk ákvarðana sem varða þróun og starfsemi aðildarháskóla innan háskólasamstæðu. Samstarfsráð markar jafnframt stefnu og er ráðgefandi fyrir rektor og háskólaráð um málefni aðildarháskóla. Ákvarðanir sem varða grundvallarbreytingar á starfsemi og námsskipan aðildarháskóla er óheimilt að taka án þess að þær hafi hlotið einróma samþykki í samstarfsráði. Nánar skal kveðið á um hlutverk og verkefni samstarfsráðs í starfsreglum sem ráðið setur sér, að fengnu samþykki háskólaráðs.
  • Rektor og forseti hvers aðildarháskóla eiga sæti í ráðinu og skal rektor vera formaður. Auk þeirra situr einn fulltrúi samstæðuháskóla og einn fulltrúi hvers aðildarháskóla í ráðinu. Rektor og forsetar skulu tilnefna fulltrúa frá sínum skóla í ráðið.

Samkvæmt lögum um opinbera háskóla er hlutverk háskólaráðs mjög víðtækt. Ráðið markar meðal annars heildarstefnu í kennslu og rannsóknum og mótar skipulag háskóla. Frumvarpið gerir ráð fyrir veigamiklu hlutverki samstarfsráðs varðandi m.a. samstarf um nám, kennslu og rannsóknir auk ákvarðana sem varða þróun og starfsemi aðildarháskóla innan háskólasamstæðunnar. Engu að síður er æskilegt að meðal fulltrúa í háskólaráði sé þekking og reynsla af háskóla- og rannsóknarstarfi á landsbyggðinni. Því er lagt til að gerð sé krafa um að annar af tveimur fulltrúum sem ráðherra tilnefnir í háskólaráð hafi slíka þekkingu og reynslu.

Tilnefning fulltrúa ráðherra í háskólaráð háskólasamstæðunnar kemur fyrst til framkvæmda hinn 1. júlí 2026 þegar nýtt háskólaráð Háskóla Íslands tekur til starfa.

Nýtt háskólaráð verður því skipað með þessum hætti (sbr. 6. gr. í lögum nr. 85/2008):

Í háskólaráði háskóla með fleiri en 5.000 nemendur skulu auk rektors eiga sæti tíu fulltrúar, tilnefndir til tveggja ára í senn:

  • Þrír fulltrúar háskólasamfélagsins tilnefndir af háskólafundi.
  • Tveir fulltrúar tilnefndir af heildarsamtökum nemenda við háskólann.
  • Tveir fulltrúar tilnefndir af ráðherra (sbr. drögin skal annar þeirra hafa þekkingu og reynslu af háskóla- og rannsóknarstarfi á landsbyggðinni). Fyrstu tvö ár háskólasamstæðunnar mun forseti Háskóla Íslands á Hólum sitja sem fulltrúi ráðherra í háskólaráði HÍ. 
  • Þrír fulltrúar tilnefndir af þeim fulltrúum sem fyrir eru í háskólaráði.

Nánari upplýsingar um stjórnskipan opinberra háskóla er lýst í lögum nr. 85/2008: Lög um opinbera háskóla | Lög | Alþingi

  • Í frumvarpinu kemur fram að samstæðuháskóli (hér Háskóli Íslands) leiði háskólasamstæðu og rektor og háskólaráð þess háskóla fari með stjórn samstæðunnar og þeirra háskóla sem undir hana heyra. Þeir háskólar sem sameinast samstæðuháskóla kallast aðildarháskólar (hér Háskóli Íslands á Hólum) og lúta sameiginlegri yfirstjórn.
  • Innan háskólasamstæðu skulu aðildarháskólar hafa sömu stöðu og skólar eða fræðasvið innan samstæðuháskóla samkvæmt IV. Kafla laga um opinbera háskóla. Daglegri starfsemi aðildarháskóla stýrir forseti skólans sem ráðinn er af rektor að undangenginni auglýsingu. Forseti aðildarháskóla skal hafa sama hlutverk og stöðu og aðrir forsetar skóla eða fræðasviða innan samstæðuháskóla. Þá skal sérstök stjórn starfa við aðildarháskóla sem gegnir sama hlutverki og stjórnir skóla eða fræðasviða.
  • Samstæðuháskóli fer með sameiginlega stjórnsýslu og stoðþjónustu háskólasamstæðu á grundvelli reglna sem háskólaráð setur.
  • Um stöðu aðildarháskóla, ráðningu, skipan og hlutverk forseta og stjórnar aðildarháskóla skal nánar kveðið á um í reglum sem háskólaráð setur, að fengnu samþykki samstarfsráðs.
  • Frekari vinna við stjórnskipulag innan samstæðunnar verður í höndum samstarfsráðs og háskólaráðs HÍ.
  • Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum njóta formlegrar viðurkenningar á fræðasviðum sínum í samræmi við lög um háskóla, nr. 63/2006. Gæðamat háskóla hefur það hlutverk að meta hvort íslenskir háskólar standist lögbundin skilyrði og kröfur til að hljóta viðurkenningu ráðuneytis háskólamála. Gæðamat háskóla grundvallar starf sitt á stöðlum og nýjustu viðmiðum sem tíðkast í gæðastarfi á Evrópska háskólasvæðinu auk þess að uppfylla innlendar kröfur um Gæðamat í háskólum.
  • Gæðamat háskóla gerir reglubundnar stofnanaúttektir sem grundvallast á formlegri viðurkenndri aðferðafræði í því skyni að tryggja að íslenskir háskólar sinni innra gæðamati og umbótum í allri starfsemi sinni. Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum reka hvor um sig sín formlegu gæðakerfi sem lúta að kjarnastarfsemi skólanna og stoðþjónustu þeirra. Rektorar og háskólaráð beggja skóla bera ábyrgð á þessum kerfum gagnvart ráðuneyti háskólamála og Gæðamati háskóla.
  • Háskólasamstæðan mun verða með eitt formlegt gæðakerfi. Mun forseti aðildarháskóla, líkt og fræðasviðsforsetar Háskóla Íslands, bera ábyrgð á gæðum starfsemi sinna rekstrareininga gagnvart rektor og háskólaráði. Í háskólasamstæðu verður innra gæðastarf þannig sameiginlegt fyrir Háskóla Íslands og Háskóla Íslands á Hólum. Reglubundnar stofnanaúttektir Gæðamats háskóla taka sömuleiðis til háskólasamstæðunnar í heild.