Háskólasamstæða Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum
Velkomin
á upplýsingasíðu samstæðuverkefnis Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands
Velkomin
á upplýsingasíðu samstæðuverkefnis Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands
Velkomin
á upplýsingasíðu samstæðuverkefnis Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands
Velkomin
á upplýsingasíðu samstæðuverkefnis Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands

Háskólasamstæða - Efling háskólastarfs á Íslandi

Í ágúst 2023 undirrituðu rektorar Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum, ásamt þáverandi háskólaráðherra viljayfirlýsingu þar sem samþykkt var að hefja formlega viðræður um aukið samstarf og mögulega sameiningu. Gerð var fýsileikagreining á því hvaða form myndi henta best til að efla starfsemi beggja skóla með aukin gæði að leiðarljósi.  

Í lok árs 2023 skilaði stýrihópur, skipaður fulltrúum beggja skóla, niðurstöðu sinni um að háskólasamstæða væri fýsilegasti kosturinn. Aðdragandinn að stofnun slíkrar samstæðu hefur því verið langur og fulltrúar beggja háskóla komið að þeirri vinnu. Einnig hefur framtíðaruppbygging kennsluhúsnæðis við Háskólann á Hólum verið til skoðunar.  

Í lok árs 2025 var frumvarp um breytingar á lögum um háskóla lagt fram í Samráðsgátt Alþingis. Á meðan beðið er endanlegrar afgreiðslu halda ákveðin undirbúningsverkefni áfram á vegum háskólanna og rannsóknarsetra Háskóla Íslands, en höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknarsetra HÍ verða fluttar í Skagafjörð við stofnun samstæðunnar. Aðrir þættir er varða myndun háskólasamstæðunnar bíða þar til frumvarpið hefur verið samþykkt. 

Á þessum vef verða birtar upplýsingar um vinnu tengda  háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. Jafnframt verður leitast við að svara spurningum starfsfólks og nemenda.  

Hægt er að senda inn fyrirspurnir eða tillögur að efni sem ætti erindi inn á þessa síðu. Allar fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.  

Hvað segja rektorar háskólanna varðandi stofnun háskólasamstæðu?

Hólmfríður Sveinsdóttir

Rektor Háskólans á Hólum

„Ég fagna stofnun háskólasamstæðunnar og þeim tækifærum sem hún opnar fyrir okkur öll. Með samstilltu átaki getum við aukið gæði kennslu, rannsókna og þjónustu við samfélagið. Háskólasamstæðan skapar aukin tækifæri fyrir framtíðarnemendur með fjölbreyttu námsframboði sem mætir þörfum samfélags og atvinnulífs um allt land. Sameiginlegur kraftur í mannauði og rannsóknum býr til háskólasamfélag sem er eftirsóknarvert og samkeppnishæft í alþjóðlegu háskólastarfi. Ég hlakka til að taka þátt í þessu sameiginlega framtaki og byggja upp enn öflugra háskólasamfélag fyrir Ísland.“

Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

Silja Bára R. Ómarsdóttir

Rektor Háskóla Íslands

„Í mínum huga felur háskólasamstæðan í sér einstakt tækifæri til að einfalda og styrkja íslenskt háskólakerfi í harðnandi alþjóðlegri samkeppni um framúrskarandi nemendur og starfsfólk. Samlegðin skiptir ekki síður máli þegar sækja þarf alþjóðlegt fjármagn til rannsókna og nýsköpunar. Þá skapar háskólasamstæðan spennandi tækifæri til að endurskoða og auka námsframboð í nánum tengslum við atvinnulíf og hagaðila og gerir okkur þannig kleift að efla enn frekar starf okkar um land allt. Ég hlakka til að taka þátt í uppbyggingu samstæðunnar með öllum þeim tækifærum sem hún færir okkur. Saman erum við einfaldlega sterkari.“